Arsenal fékk góðar fréttir fyrir stórleikinn

Riccardo Calfiori er orðinn heill heilsu.
Riccardo Calfiori er orðinn heill heilsu. AFP/Marco Bertorello

Ítalinn Riccardo Calafiori er mættur aftur til æfinga hjá Arsenal fyrir seinni leik liðsins gegn París SG í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Parísarborg annað kvöld. 

Calafiori hefur verið frá í dágóðan tíma en hann æfði með liðinu í dag. 

Jurriën Timber æfði þá líka en hann var ekki með liðinu í 2:1-tapi fyrir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn var. 

Leikmennirnir verða því væntanlega báðir í leikmannahópi Arsenal annað kvöld en París SG er með 1:0-forystu eftir fyrri leikinn í London. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert