Trent Alexander-Arnold, varafyrirliði enska knattspyrnufélagsins Liverpool sem er uppalinn hjá félaginu, er á förum frá Englandsmeisturunum í sumar og til Real Madrid á Spáni.
Alexander-Arnold mun yfirgefa félagið á frjálsri sölu eftir 20 ár en margir stuðningsmenn Liverpool eru ósáttir.
Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Liverpool, er svekktur vegna ákvörðunar Alexanders-Arnolds og vill ekki að aðrir segi stuðningsmönnum Liverpool hvernig þeim eigi að líða.
„Sumir óska honum alls hins besta og aðrir eru reiðir, ég er mitt á milli. Ég er hins vegar orðinn þreyttur á því að lesa greinar frá blaðamönnum eða öðrum sem eru að segja stuðningsmönnum Liverpool hvernig þeim eigi að líða.
Liverpool er borg með miklar tilfinningar, það gerir Liverpool að Liverpool. Alexander-Arnold má gera það sem hann vill, en stuðningsmönnum Liverpool mega líka hafa sínar skoðanir,“ sagði Carragher á SkySports.