Man ekki eftir leik sem hann spilaði

Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold. AFP/Oli Scarff

Trent Alexander-Arnold man ekki eftir leik Liverpool gegn Manchester United sem endaði með jafntefli, 2:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í janúar á þessu ári. 

Telegraph segir frá en blaðamaður miðilsins Chris Bascombe segist hafa heimildir fyrir því frá innsta hring leikmannsins. 

Alexander-Arnold er á förum frá Liverpool í sumar en hann er uppalinn hjá félaginu og vann tvo Englandsmeistaratitla sem og Meistaradeildina. Mun hann að öllum líkindum ganga til liðs við Evrópumeistara Real Madrid. 

Fyrsti leikur eftir að Real bauð í hann

Alexander-Arnold var harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína gegn United í janúar en jafnteflið var slæmt á þeim tíma, en hafði síðan enga þýðingu þegar leið á tímabilið. 

Leikurinn var sá fyrsti eftir að Real Madrid bauð Liverpool 20 milljónir punda til að fá hann strax í janúar frekar en á frjálsri sölu, líkt og mun gerast í sumar. 

Samkvæmt Telegraph var hugurinn hjá Alexander-Arnold allt annars staðar en á vellinum þann daginn og á hann ekki að hafa munað eftir neinum sem tengdist leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert