„Mun glata ást stuðningsmanna Liverpool“

Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold. AFP/Oli Scarff

Trent Alexander-Arnold mun yfirgefa Liverpool eftir 20 ár hjá Englandsmeisturunum í knattspyrnu í sumar. 

Hann sagði frá þessu á samfélagsmiðlum í gær. 

Samningur hans í Bítlaborginni rennur út í sumar og er honum þá frjálst að semja við önnur félög, sem hann mun gera. Allar líkur eru á því að hann verði leikmaður Real Madrid. 

Jamie Carragher, sparkspekingur hjá SkySports og fyrrverandi leikmaður Liverpool til margra ára, var spurður út í ákvörðun Alexander-Arnolds. 

„Hann mun glata nokkru sem hann er með núna hjá stuðningsmönnum Liverpool. Þessi endalausa ást og hvernig þeir líta á hann sem einn af þeim, sú tilfinning mun hverfa.

Sumir segja að það sé ekki þess virði en öðrum finnst þú verða að spila fyrir Real Madrid, þetta er jú stærsta félag í heimi,“ sagði Carragher. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert