Tom Cleverley hefur verið rekinn sem stjóri karlaliðs Watford á Englandi.
Watford hafnaði í 14. sæti ensku B-deildarinnar á tímabilinu og vann aðeins fimm leiki á árinu.
Cleverley tók við sem bráðabirgðastjóri í mars í fyrra en fékk síðan starfið eftir góðan árangur. Hann var þá leikmaður liðsins í sex ár áður en hann fór að starfa í teymi þess.
Cleverley kom í gegnum akademíu Manchester United og lék yfir 70 leiki fyrir félagið og 13 landsleiki fyrir England.
Cleverley er tíundi stjórinn til að vera rekinn á fimm árum hjá Watford en hann náði að stýra liðinu í 59 leikjum, sem er meira en tíu síðustu stjórar.