Villa ósátt við flýtingu leiks

Tottenham fékk leik sínum gegn Aston Villa flýtt.
Tottenham fékk leik sínum gegn Aston Villa flýtt. AFP/Benjamin Cremel

Enska úrvalsdeildin hefur ákveðið að verða við beiðni Tottenham Hotspur um að flýta fyrirhuguðum leik sínum gegn Aston Villa í deildinni þann 18. maí næstkomandi um tvo daga.

Tottenham reiknar með því að komast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fer fram í Bilbao 21. maí og þótti liðinu því óheppilegt að spila í deildinni aðeins þremur dögum fyrr.

Manchester United, sem er líkt og Tottenham í góðri stöðu eftir fyrri leik liðanna í undanúrslitum, á einmitt leik föstudagskvöldið 16. maí og nú er ljóst að bæði liðin munu spila þá.

Ekki fundið fyrir þessum stuðningi

„Leiktímanum var breytt og ég er satt að segja ekki ánægður. En þetta hefði getað verið ennþá verra.

Við, allir hjá félaginu í mismunandi stöðum, þrýstum virkilega á að leiknum gegn Spurs yrði haldið á sunnudeginum á grundvelli öryggis stuðningsmanna okkar, sem er okkar aðal skylda að sinna.

Það er ekkert til að hnýta í Spurs. Við fundum ekki fyrir þessum stuðningi á síðasta tímabili eða þessu. Evrópufótbolti er ekki einungis krefjandi fyrir félög sem eru á barmi þess að komast í úrslit,“ skrifaði Damian Vidagany, yfirmaður knattspyrnumála hjá Villa, á samfélagsmiðlum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert