De Bruyne til Liverpool?

Kevin De Bruyne yfirgefur Manchester City í sumar.
Kevin De Bruyne yfirgefur Manchester City í sumar. AFP/Darren Staples

Belgíski knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne, miðjumaður Manchester City, er með samningstilboð á borðinu frá Englandsmeisturum Liverpool og Napoli, toppliði ítölsku A-deildarinnar.

Sky Sport á Ítalíu greinir frá.

Samningur hins 33 ára gamla De Bruyne rennur út í sumar og ákvað Man. City að bjóða honum ekki nýjan samning.

Mikill áhugi er á Belganum sparkvissa, þar á meðal hjá félögum í Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu.

Inter Miami hafði verið orðað við hann en samkvæmt breska ríkisútvarpinu hefur félagið ákveðið að sækjast ekki eftir kröftum De Bruynes.

Chicago Fire í bandarísku MLS-deildinni hefur hins vegar sett sig í samband við teymi hans með það fyrir augum að semja við De Bruyne.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert