Enska knattspyrnufélagið Wolverhampton Wanderers hefur áhuga á því að festa kaup á Harvey Elliott, miðjumanni Englandsmeistara Liverpool, í sumar.
Elliott hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Liverpool á tímabilinu sem er senn á enda og aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni.
Samkvæmt Talksport eru Úlfarnir áhugasamir um að festa kaup á honum en talið er að verðmiðinn á Elliott sé um 40 milljónir punda, tæpir sjö milljarðar íslenskra króna.
Hann er 22 ára gamall og hefur aðeins byrjað fimm af þeim 25 leikjum sem Elliott hefur spilað í öllum keppnum á tímabilinu.