Arsenal vill framlengja við Frakkann

William Saliba og Ousmane Dembélé í leik Arsenal og París …
William Saliba og Ousmane Dembélé í leik Arsenal og París SG í gærkvöldi. AFP/Franck Fife

Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur hafið viðræður við franska miðvörðinn William Saliba um möguleikann á því að framlengja samning hans.

Samningur Saliba rennur út sumarið 2027 og samkvæmt L’Équipe vill Arsenal ólmt forðast það að missa hann frá sér ódýrt næsta sumar eða á frjálsri sölu þarnæsta sumar.

Saliba, sem er 24 ára gamall lykilmaður Arsenal, hefur verið orðaður við Real Madríd.

Spænska stórveldið er sagt reiðubúið að bíða eftir því að samningur hans renni út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert