Eigendur enska knattspyrnufélagsins Chelsea vilja ólmir byggja nýjan leikvang en viðurkenna að það sé ýmsum erfiðleikum háð.
„Ég held að allir átti sig á því að jafn stórt félag og Chelsea ætti að vera með leikvang sem endurspeglar þá stærð.
Þegar allt kemur til alls verður það góður kostur hvað allar framtíðaráætlanir varðar,“ sagði Todd Boehly, einn af eigendum Chelsea og stjórnarformaður, á ráðstefnu á dögunum.
Þegar hann tók við sem stjórnarformaður sumarið 2022 lét Boehly hafa eftir sér að ferlið gæti tekið 15 til 20 ár. Nýr leikvangur gæti því litið dagsins ljós ekki fyrr en árið 2042.
Stamford Bridge tekur rúmlega 40.000 manns í sæti en samkvæmt áætlunum á nýi leikvangurinn að taka um 60.000 manns í sæti.
Boehly segir verkefnið stórt og kostnaðarsamt en auk þess hefur gengið erfiðlega fyrir félagið að fá byggingaleyfi í Lundúnum.
Hansjörg Wyss, einn eigenda Chelsea, virðist ekki jafn bjartsýnn á framgang verkefnisins.
„Ég veit ekki hvort þetta muni gerast. Það eru mikið af hindrunum til staðar. Sem stendur erum við ekki með neina eina manneskju sem stýrir þessu verkefni. Það er það sem við þyrftum,“ hefur Daily Mail eftir Wyss.