Leikmenn Arsenal táruðust eftir tap liðsins gegn París SG, 2:1, í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar karla í knattspyrnu í Parísarborg í gærkvöldi.
París SG vann einvígið samanlagt 3:1 og er á leiðinni í úrslitaleikinn.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sagði í viðtali eftir leik að leikmenn hans hefðu verið mjög svekktir.
„Ég sé hversu mikið þeir vilja vinna því þeir voru grátandi eftir leikinn,“ sagði Arteta.