Sheffield United er komið langt með að tryggja sér sæti í úrslitaleik umspils ensku B-deildarinnar í knattspyrnu karla um eitt laust sæti í úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið Bristol City 3:0 á útivelli í kvöld.
Um fyrri leik liðanna var að ræða og mætast þau aftur í Sheffield næstkomandi mánudagskvöld.
Vendipunkturinn í leiknum var undir lok fyrri hálfleiks þegar Rob Dickie togaði Kieffer Moore niður í vítateig sem aftasti maður og fékk fyrir vikið beint rautt spjald.
Sheffield fékk auk þess vítaspyrnu og úr henni skoraði Harrison Burrows af miklu öryggi.
Í síðari hálfleik bættu þeir Andre Brooks og Callum O’Hare við mörkum og tryggðu gestunum þannig öruggan sigur.