Arteta tekur hattinn ofan fyrir Liverpool

Lærisveinar Mikels Arteta munu standa heiðursvörð fyrir Liverpool.
Lærisveinar Mikels Arteta munu standa heiðursvörð fyrir Liverpool. AFP/Thomas Samson

Leikmenn Arsenal munu standa heiðursvörð fyrir Englandsmeistara Liverpool fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Anfield næstkomandi sunnudag. 

Liverpool vann úrvalsdeildina fyrir tveimur umferðum en Chelsea stóð heiðursvörð fyrir Liverpool í síðustu umferð. 

Hefð er fyrir því að lið sem mæta meisturum standi heiðursvörð og er ekkert lát á því hjá mótherjum Liverpool. 

„Þeir eiga það skilið. Liverpool hefur verið betri en við og besta liðið á Englandi. 

Það sem þjálfarateymi liðsins hefur gert er heillandi. Svona er íþróttin, þegar einhver er búinn að vera betri en þú þá klappar maður fyrir þeim og sættir sig við það og reynir síðan að ná því stigi,“ sagði Arteta á blaðamannafundi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert