Brasilíumaðurinn aftur til Liverpool-borgar?

Richarlison gæti orðið leikmaður Everton á nýjan leik.
Richarlison gæti orðið leikmaður Everton á nýjan leik. AFP/Ben Stansall

Enska knattspyrnufélagið Everton vill fá Brasilíumanninn Richarlison, framherja hjá Tottenham, aftur í sínar raðir í sumar. 

Sky Sports segir frá en samkvæmt miðlinum er Everton að skoða möguleikann á að fá leikmanninn, sem spilaði hjá liðinu í fjögur ár, aftur til sín. 

Richarlison var mjög vinsæll hjá Everton og stóð sig vel sem landaði honum félagaskiptunum til Tottenham. Hann hefur þó ekki náð að festa sig í sessi í Lundúnum. 

Richarlison skoraði 53 mörk í 152 leikjum fyrir Everton. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert