Norðmaðurinn Erling Haaland segist ekki hafa staðið sig nógu vel á yfirstandandi tímabili með enska knattspyrnuliðinu Manchester City.
Manchester City hafði unnið fjóra Englandsmeistaratitla í röð fyrir þetta tímabil og meðal annars þrennuna árið 2023.
Hins vegar hefur liðið valdið vonbrigðum á þessu tímabili og er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, 18 stigum frá Englandsmeisturum Liverpool.
Þá datt City úr leik í umspili Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid.
„Auðvitað er alltaf hægt að finna afsakanir og við höfum glímt við slæm meiðsli, en þegar allt er sagt þá höfum við ekki verið nógu góðir.
Við höfum ekki verið hungraðir, ég hef hvorki staðið mig nógu vel né hjálpað liðinu eins mikið og ég get,“ sagði Haaland hreinskilinn við ESPN.
City-menn eru þó komnir í úrslit bikarsins og munu mæta Crystal Palace þann 17. maí.
Haaland var á bekknum hjá City í 1:0-sigri liðsins á Wolves í síðustu umferð en fyrir það hafði hann verið frá í yfir mánuð vegna meiðsla. City mætir Southampton í ensku úrvalsdeildinni á morgun og gæti Haaland spilað þann leik.