Norðmaðurinn Erling Haaland er klár í slaginn fyrir útileik Manchester City gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun.
Haaland hefur verið frá í meira en mánuð eftir að hafa meiðst í átta liða úrslitum enska bikarsins gegn Bournemouth í lok mars.
Hann var á bekknum hjá City í síðasta leik gegn Wolves en kom ekki inn á völlinn. Pep Guardiola býst þó við að hann spili á morgun, en hvort hann verður í byrjunarliðinu er óvíst.