Alexis Mac Allister, miðjumaður Englandsmeistara Liverpool, hefur verið útnefndur besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í aprílmánuði. Vítor Pereira, knattspyrnustjóri Wolves, hefur þá verið útnefndur stjóri mánaðarins.
Báðir unnu þeir til verðlaunanna í fyrsta sinn á ferlinum.
Mac Allister lék vel í aprílmánuði en hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt mark til viðbótar í fimm leikjum fyrir Liverpool er liðið vann úrvalsdeildina í tuttugasta skipti.
Úlfarnir gerðu sér þá lítið fyrir og unnu alla fimm leiki sína í deildinni í apríl undir stjórn Pereira og komu sér þannig úr fallbaráttu með sannfærandi hætti.