Slot um Trent: Þetta eru vonbrigði

Trent Alexander-Arnold og Arne Slot.
Trent Alexander-Arnold og Arne Slot. AFP/Paul Ellis

Hollendingurinn Arne Slot, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, segir það vera vonbrigði að varafyrirliðinn Trent Alexander-Arnold sé á förum frá félaginu á frjálsri sölu í sumar.

Alexander-Arnold tilkynnti að hann væri á förum fyrr í vikunni en samningur hans rennur út í sumar. Mun hann þá ganga til liðs við Real Madrid, að öllum líkindum. 

Slot var mikið spurður út í Alexander-Arnold á blaðamannafundinum en stuðningsmenn Liverpool eru margir hverjir ekki ánægðir með ákvöðrun varafyrirliðans, sem er uppalinn hjá félaginu. 

„Ég ætla ekki að segja stuðningsmönnunum hvernig þeim eigi að líða. Við erum að sjálfsögðu öll vonsvikin en Trent er sá fyrsti til að segja að þessar fregnir eigi ekki að trufla of mikið. 

Ég vona að orkunni verði frekar beint að liðinu og leiknum heldur en þessari ákvörðun Trents á sunnudaginn,“ sagði Slot á blaðamannafundi. 

Liverpool tekur á móti Arsenal klukkan 15.30 á sunnudaginn og verður leikurinn í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert