West Ham líklegast til að næla í markvörðinn

Aaron Ramsdale vill halda áfram í ensku úrvalsdeildinni.
Aaron Ramsdale vill halda áfram í ensku úrvalsdeildinni. AFP/Glyn Kirk

Nokkur ensk úrvalsdeildarfélög eru á eftir Aaroni Ramsdale, markverði knattspyrnuliðsins Southampton. 

Southampton er fallið úr ensku úrvalsdeildinni en Ramsdale gekk í raðir félagsins frá Arsenal fyrir tímabilið. 

Hann er hins vegar með klásúlu í samningi sínum sem segir að ef Southampton felllur megi hann fara frá félaginu ef annað félag borgar 25 milljónir punda fyrir hann. 

West Ham er sagt vera í bestu stöðunni til að fá Ramsdale en Lundúnafélagið ætlar að bjóða 20 milljónir punda í hann. Teamtalk segir frá en samkvæmt miðlinum mun félagið líklega þurfa að greiða uppsett verð eða 25 milljónir punda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert