Southampton náði í mikilvægt stig gegn Manchester City er liðin gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Stigið þýðir að Southampton er ekki versta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en liðið er nú með 12 stig á botninum.
Derby County er því enn með lægsta stigafjölda í sögu deildarinnar en liðið endaði með aðeins 11 stig tímabilið 2007 til 2008.
Manchester City er í þriðja sæti með 65 stig.
Everton gerði góða ferð til Lundúna er liðið lagði Fulham, 3:1, í dag.
Raul Jiménez kom heimamönnum yfir á 17. mínútu. Vitaliy Mykolenko jafnaði metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks og var staðan því 1:1 í leikhléi.
Michael Keane kom Everton yfir á 70. mínútu og Beto innsiglaði síðan sigurinn með þriðja marki liðsins aðeins þremur mínútum síðar.
Fulham er í 11. sæti deildarinnar með 51 stig en Everton er í 13. sæti með 42 stig.
Brentford vann 1:0-sigur gegn Ipswich á Portman Road í dag. Þjóðverjinn Kevin Schade skoraði sigurmarkið á 18. mínútu leiksins.
Brentford situr í áttunda sæti með 55 stig. Ipswich er í 18. sæti með 22 stig en liðið er nú þegar fallið.
Að lokum vann Brighton góðan útisigur gegn Wolves, 2:0.
Danny Welbeck kom Brighton yfir á 28. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Á 85. mínútu gerði Brajan Gruda út um leikinn.
Brighton er í níunda sæti deildarinnar með 55 stig en Wolves situr í 14. sæti með 41 stig.