Mikilvægur sigur í Meistaradeildarbaráttunni

Ollie Watkins og Jacob Ramsey fagna marki fyrrnefnda.
Ollie Watkins og Jacob Ramsey fagna marki fyrrnefnda. AFP

Aston Villa vann mikilvægan sigur gegn Bournemouth, 1:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld.

Úrslitin þýða að Aston Villa er með 63 stig í sjötta sæti, jafnmörg stig og Newcastle og Chelsea í fjórða og fimmta sæti sem veita sæti í Meistaradeildinni. Bournemouth er í tíunda sæti með 53 stig

Ollie Watkins skoraði sigurmarkið í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Aston Villa missti mann af velli á 80. mínútu þegar Jacob Ramsey fékk rautt spjald. Þrátt fyrir það hélt liðið út og vann góðan 1:0-sigur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert