Danny Welbeck náði merkum áfanga með marki sínu fyrir Brighton gegn Wolves í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Wolverhampton í dag.
Leikurinn hófst klukkan 14 og er enn í gangi en Welbeck kom Brighton yfir á 28. mínútu með marki úr vítaspyrnu og er það enn eina mark leiksins.
Welbeck skoraði þar með sitt tíunda mark í deildinni en hann hefur verið drjúgur í framlínu Brighton. Þetta er í fyrsta sinn á 17 árum hans í ensku úrvalsdeildinni sem hann nær tíu eða fleiri mörkum.
Welbeck hóf feril sinn með Manchester United en hann hefur einnig spilað fyrir Preston, Sunderland, Arsenal og Watford.