Egyptinn Mohamed Salah, knattspyrnumaður hjá Englandsmeisturum Liverpool, tjáði sig um samband sitt og fyrrverandi liðsfélaga síns Sadio Mané.
Salah og Mané mynduðu eitrað sóknarþríeyki ásamt Brasilíumanninum Roberto Firmino á sínum tíma undir stjórn Jürgens Klopps.
Leikmennirnir náðu vel saman inn á vellinum og unnu ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu og skoruðu helling af mörkum.
Þó virtist oft sem það ríkti spenna á milli stjarnanna tveggja, eitthvað sem Salah staðfesti í viðtali við France Football.
„Já, það var spenna á milli okkar. Við sýndum samt alltaf fagmennsku og það hafði held ég ekki áhrif á liðið. Það er mannlegt að menn vilji meira, ég skil það, hann er líka keppnismaður.
Við vorum ekki nánir utan vallar en við bárum alltaf virðingu fyrir hvor öðrum,“ sagði Salah.
Salah var síðan spurður út í þá skoðun að hann væri eigingjarn leikmaður.
„Mér er sama hvað fólki finnst og það má hafa sína skoðun á því. Ég vil þó benda á eitt – ég er sá sem gaf Mané flestar stoðsendingar,“ svaraði Salah en hann lagði 18 sinnum upp á Mané.