Knattspyrnumaðurinn Diogo Jota var á leiðinni til Englands eftir sumarfrí í Portúgal þegar hann lést í bílslysi á Spáni seint í gærkvöld.
Jota gekkst nýverið undir aðgerð á lunga og læknar ráðlögðu honum af þeim sökum að fljúga ekki til Englands.
Hann ætlaði því að fara landleiðina frá Porto til Santander á Norður-Spáni, ásamt bróður sínum André Silva. Það er um 640 kílómetra vegalengd, svipað og frá Reykjavík til Egilsstaða, og þeir voru um það bil hálfnaðir á þeirri leið þegar slysið átti sér stað við smábæinn Cernadilla í Zamora-héraði, um klukkan 01.30 að staðartíma á Spáni, um 23.30 að íslenskum tíma.
Jota ætlaði síðan að fara með ferju frá Santander til Englands en æfingar Liverpool eftir sumarfríið eiga að hefjast á mánudaginn kemur.
Lögregluyfirvöld í Zamora-héraði skýrðu frá því að allt benti til þess að hjólbarði á bifreið bræðranna hefði sprungið þegar þeir óku fram úr annarri bifreið með þeim afleiðingum að hún valt og eldur kom upp í henni. Bræðurnir hefðu verið úrskurðaðir látnir á slysstað.