Keðja Anathemu í bakpokann

Grafík/Riot Games/LoL

Ný uppfærsla í leiknum League of Legends býður upp á ýmsar nýjungar og meðal annars verður hægt að kaupa keðju Anathemu, sem er nýr hlutur innanleikjar. Keðjan gerir tiltekinn andstæðing að eigin vali á að erkióvini þínum (e. nemesis).

Keðjan er ætluð tankaspilurum og þegar búið er að velja andstæðing til þess að hlekkja í álög keðjunnar er ekki hægt að breyta og velja annan andstæðing til þess að snara. Keðjan er öflugt galdravopn til þess að hafa í bakpokanum sínum og gefur eiganda t.d. auka 650 lífsstig ásamt því að auka snerpu (e. haste) um tuttugu stig.

Lesa má meir um uppfærsluna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert