Íslenska tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games stendur fyrir móti í stafræna safnkortaspilaleiknum sínum KARDS á morgun, 20. júní.
Mótið ber heitið „Officer Club Tournament“ og munu bestu KARDS-spilarar heimsins keppast um titil sigurvegara og rúmlega 120 þúsund króna verðlaunafé. Hægt verður að fylgjast með keppninni á Twitch-rás KARDS, www.twitch.tv/KARDSccg, og byrjar útsending klukkan 15.
KARDS er stafrænn safnkortaspilaleikur sem gerist í heimi seinni heimsstyrjaldar. Slíkir leikir hafa notið síaukinna vinsælda en með því að vera í stafrænu formi nýtist netið í að finna og tengja saman spilara í stað þess að þeir verði að hittast í persónu eins og þegar spiluð eru hefðbundin safnkortaspil eins og Magic: The Gathering.
Nánari upplýsingar um 1939 Games má finna á vefsíðu þess og nánari upplýsingar um leikinn KARDS má finna á vefsíðu leiksins.
Fyrir þá sem gætu hugsað sér að prófa leikinn og kynnast honum nánar þá er einnig hægt að sækja hann frítt á Steam.