Overwatch-tímabilið heldur áfram í dag

Merki Overwatch League.
Merki Overwatch League. Blizzard Entertainment, Inc.

Countdown Cup, fjórða og á ákveðinn hátt síðasta mót núverandi tímabils Overwatch-deildarinnar (Overwatch League), hefst klukkan 19 í dag. Eins og í þremur fyrri mótum verða umspil þrjár helgar og svo fjórðu helgina verður útsláttarkeppni þar sem liðin hafa tækifæri til að vinna sér inn stig til að komast í úrslitakeppni deildarinnar.

Leikir helgarinnar.
Leikir helgarinnar. Skjáskot/Liquipedia.net

Hvar fylgist ég með?

Overwatch gæti hafa farið framhjá sumum rafíþróttaunnendum sem halda sig við Twitch en útsendingar af Overwatch League fara fram á Youtube. Hægt er að fylgjast með á youtubesíðu Overwatch League og hefst fyrsti leikur klukkan 19 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert