Dularfullur rannsóknarleikur

Grafík/HandyGames

Goðsagnarkennt teymi fyrri tíðar lögreglunnar er knúið til þess að hefja samstarf á ný í einstökum tölvuleik, Chicken Police - Paint It Red, sem HandyGames og The Wild Gentleman gáfu út í nóvember 2020.

Einstaklega dularfullur

Teymið samanstendur af Sonny Featherland og Marty McChicken sem klæddir eru jakkafötum en koma á óvart þar sem þeir bera hana höfuð. Það má sjá fleiri áhugaverðar persónur í leiknum og hafa þær allar einhverskonar dýrahöfuð þrátt fyrir mennskan líkama.

Þessi afar einstaki samtalsleikur gengur út á rannsókn dularfulls máls sem kom upp í grátóna og gamaldags bæ og sér leikmaður um að stýra samtölum og yfirheyrslum en aðrar litla uppákomur gætu látið á sér bera í gegnum leikinn.

Grafík/Handy Games

 Dramatík og ástarævintýri

Söguþráðurinn er áhugaverður og en þrátt fyrir sitt skoplega yfirbragð hefur hann að geyma dramatísk atriði í tengsl við dauðann, ástina og bjargræði. 

Samkvæmt Steam er þetta tryllt saga um ástina, dauðann, kjúklinga og frelsun. Leikurinn blandar saman klassískum ævintýraleikjum við sjónræna skáldsögu sem útfærð er á einstaka vegu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert