Leiknar senur úr Resident Evil 2

Skjáskot/ResidentEvil2Remake

Tölvuleikurinn Resident Evil 2 kom fyrst út árið 1998, og er talinn besti leikur Resident Evil leikjaraðarinnar. Leikurinn var endurbættur og aftur gefinn út árið 2019. Aðdáandi leiksins gerði myndband á TikTok sem sýnir senur úr leiknum í raunheiminum.

Leika senur úr leiknum

TikTok-notandinn lake_skywalker gerði myndband þar sem hann ásamt kunningjum sínum leika eftir senur úr leiknum. Myndbandið er bæði fyndið og metnaðarfullt, en hann notar sömu hljóð og eiginleika sem má finna í leiknum. 

Það má því segja að hann hafi endurgert senu úr leiknum í raunheiminum, en hafa fleiri gert slík myndbönd úr öðrum leikjum á TikTok. Aðgangur lake_skywalker inniheldur fleiri svipuð myndbönd úr leiknum, en eitt myndband er hér tekið fyrir og er sjón sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert