Þættir byggðir á League of Legends

Skjáskot úr nýjum þáttum Arcane.
Skjáskot úr nýjum þáttum Arcane. Skjáskot/youtube.com/LeagueOfLegends

Eftir að fréttir bárust af gerð sjónvarpsþáttanna Arcane, sem byggðir eru á leiknum League of Legends, hafa margir beðið eftirvæntingafullir eftir fleiri fréttum af þáttunum. Hefur nú verið staðfest hvenær fyrsta þáttaröðin fer í loftið.

Fyrstu sjónvarpsþættir Riot Games

Er þetta í fyrsta skipti sem Riot Games gefur út sjónvarpsþætti. Sjónvarpsþættirnir Arcane eru byggðir á leiknum League of Legends og verða þættirnir tölvuteiknaðir (e. animated). Fyrsta þáttaröð Arcane fer í loftið 7. nóvember og verður aðgengileg á streymisveitunni Netflix.

Úrslit heimsmeistaramótsins í League of Legends verða spiluð þann 6. Nóvember næstkomandi, og því tilvalið að fagna endalokum mótsins með því að horfa á þætti sem byggja á sama tölvuleik.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert