Tekjuhæstur í heimi 22 ára gamall

Miroslaw Kolpakov, Mira.
Miroslaw Kolpakov, Mira. Skjáskot/teamspirit.ru

Úkraenski rafíþróttamaðurinn Miroslaw Kolpakov, einnig þekkktur sem Mira, er 22 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur er hann nú þegar orðinn hæst launaði rafíþróttamaður þessa árs.

Hálfur milljarður á einu ári

Hann hefur á þessu ári unnið sér inn tæplega hálfan milljarð íslenskra króna eða 485,961,455 krónur sem gera 3,689,072 bandaríkjadali.

Spilar hann tölvuleikinn Dota 2 með liðinu Team Spirit og hafa þeir nýlega sigrað alþjóðlegt stórmót í tölvuleiknum en það veitti liðinu átján milljónir bandaríkjadala í sigurfé.

Nýliðar koma á óvart

Team Spirit var ekki talið singurstrangt á mótinu enda lið með ungum leikmönnum sem teljast til nýliða og kom sigurinn því vel á óvart.

Eflaust vegna þessa óvænta sigurs og ótrúlegs árangurs nýliða þá hefur liðið verið tilnefnt sem besta rafíþróttaliðið á thegameawards ásamt liðunum Atlanta FaZe í Call of Duty, Damwon Gaming í League of Legends, Natus Vincere í Counter-Strike og Sentinels í Valorant.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert