Gjaldfrjálsir tölvuleikir í eina viku

Epic Games gefur tölvuleiki vikulega.
Epic Games gefur tölvuleiki vikulega. Ljósmynd/Unsplash/ELLA DON

Tölvuleikjafyrirtækið Epic Games hefur verið að gefa tölvuleiki vikulega frá því að vefverslunin Epic Games Store fór í loftið í desember 2018.

Farðu að veiða

Tölvuleikirnir sem eru gjaldfrjálsir frá deginum í dag fram að 2. desember eru theHunter: Call of the Wild, sem er veiðileikur þar sem þú hefur kost á að fara á gæs eða annað slíkt í þessum raunverulega tölvuleik.

„Þú getur farið einn að veiða eða farið að veiða með vinum þínum. Mundu bara að þú ert ekki gestur í þessum heim, þú ert lifandi hlutur af heildinni," stendur um leikinn á vefsíðu Epic Games.

Fullt af gimsteinum

Seinni valkosturinn sem Epic Games býður upp á gjaldfrjálsan í þessarri viku eru 1090 gimsteinar til þess að nota í tölvuleiknum Antstream en þar eru ýmsir spilasalaleikir og fleira skemmtilegt sem kostar gimsteina.

Epic Games gaf 103 tölvuleiki árið 2020 að andvirði 316,665 íslenskra króna í heildina en í gegnum þennan hlekk má finna tölvuleikina frá Epic Games.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert