Kominn aftur „heim“ á Twitch

Disguised Toast tilkynnir að hann sé kominn aftur á Twitch.
Disguised Toast tilkynnir að hann sé kominn aftur á Twitch. Skjáskot/Twitter/Disguised Toast

Efnishöfundurinn Disguised Toast snýr aftur í sviðsljósið á streymisveitunni Twitch eftir að hafa verið á Facebook Gaming í tvö ár.

Disguised Toast hóf streymisferilinn sinn á Twitch árið 2015 en sagði skilið veituna þegar að honum bauðst þrjátíu sinnum hærri tekjur í gegnum Facebok Gaming samkvæmt Toast. Hann hefur nú snúið aftur að streymisveitunni Twitch og tilkynnir það með því að tísta myndbandi.



Kakan í íþróttatöskunni

„Ég bjóst ekki við því að vera kominn hingað aftur svona skyndilega, en hér erum við, tvö ár, tími fyrir nýjan vettvang,“ segir Toast í myndbandinu sem fylgdi tilkynningunni á Twitter.

Í myndbandinu gengur Toast að auðu borði með gráa og fjólubláa Twitch íþróttatösku og sækir sér köku sem geymd var í töskunni. 

Á heima á Twitch

„Veistu, hér hefur mér alltaf fundist ég eiga heima. Fullt af áhorfendum og aðdáendum fylgjast með mér á þessum vettvangi og þetta kemur bara allt heim og saman, þú skilur.“

Disguised Toast er með yfir tvær milljónir fylgjenda á Twitch og streymir hann þar frá sér að spila ýmsa og fjölbreytta leiki á borð við Hearthstone, Teamfight Tactics og Amongs Us ásamt því að spjalla einstaka sinnum við áhorfendurnar undir „Bara spjall“ (e. Just Chatting) efnisflokknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert