God of War lentur

God of War er nú hægt að spila á PC-tölvum.
God of War er nú hægt að spila á PC-tölvum. Grafík/Santa Monica Studios/God of War

Tölvuleikurinn God of War sem kom fyrst út árið 2018 fyrir PlayStation leikjatölvur er nú lentur á leikjaveitunni Steam og því hægt að spila hann á Windows-stýrikerfi eða í gegnum PC-tölvur.

Samkvæmt tölfræði frá SteamDB náði leikurinn nýjum hæðum þegar 73.529 leikmenn spiluðu samtímis í gær.

God of War er hlutverkaleikur frá Santa Monica Stúdíóinu og hefur verið mjög vinsæll á meðal PlayStation leikmanna, þar sem að leikinn var áður aðeins hægt að spila á Playstation. Áhugavert verður að fylgjast með hvort takist jafn vel til nú þegar hægt er að spila leikinn á PC-tölvum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert