Veita áhorfendum innsýn í árið

Forsýningarviðburður fyrir árið 2022 í tölvuleiknum Sea Of Thieves verður …
Forsýningarviðburður fyrir árið 2022 í tölvuleiknum Sea Of Thieves verður þann 27. janúar. Skjáskot/YouTube/SeaOfThieves

Rare tilkynnti með myndbandi að forsýningarviðburður Sea Of Thieves 2022 mun veita áhorfendum fyrstu sýn á hvað er í vændum hjá sjóræningjaleiknum seinna á árinu.

Í myndbandinu kemur fram að á fimmtudaginn 27. janúar munu þróunaraðilar Sea Of Thieves streyma frá forsýningarviðburði þar sem að áhorfendum er veitt innsýn inn í hvers má vænta af tölvuleiknum á þessu ári auk einhverra stríðnisstikla.

2022 er sagt vera eitt stærsta ár fyrir leikinn og verður því áhugavert að fylgjast með viðburðinum en hann hefst klukkan 18:00 á fimmtudaginn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert