Master Chief deilir uppskrift af chilli rétt

Halo þáttaröð hefst á nýju ári.
Halo þáttaröð hefst á nýju ári. Skjáskot/YouTube

Steve Downes, sá sem talar fyrir Master Chief í Halo, deildi nýlega uppskriftinni að Master Chief Chilli réttinum eins og hann kallar það sjálfur með netverjum.


Samkvæmt Downes eru þetta hráefnin sem þarf til þess að búa til Master Chief Chili réttinn:


1 kg af hakki
800 gr af tómötum
200 gr af tómatpúrru
425 gr af nýrnabaunum
Ein stór kartafla, skorin í ferninga
Einn stór laukur, rifinn

Hakk og laukur er blandað saman í potti og látið brúnast, síðan er bætt við tómötum og tómatpúrru ásamt örlitlu vatni, salti og pipari.

Látið krauma í tvær klukkustundir, bætt við baunum og kartöflum og látið krauma í tvær klukkustundir í viðbót. Síðan er þetta kælt og geymt inni í ísskáp yfir nótt. Að lokum er fleytt aukafitunni af.

Af uppskriftinni að dæma virðist ekki vera mikið um krydd í framtíðinni en Pringles gerði þó heiðarlega tilraun til þess að búa til sérstakt Halo- snakk með Moaborgara bragði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert