Heldur áfram í Arena á sunnudaginn

Super Smash Bros Ultimate.
Super Smash Bros Ultimate. Grafík/Nintendo

Íslenska mótaröðin Zoner's Paradise heldur áfram um helgina eftir tvö samfélagskvöld sem haldin voru nýlega. Næsta mót fer fram næstkomandi sunnudag, þann 29. maí í rafíþróttahöllinni Arena.

Stærst á Íslandi

Zoner's Paradise er stærsta íslenska mótaröðin á landinu í bardagaleiknum Super Smash Bros Ultimate en hann er spilaður á Nintendo Switch.

Mótið hefst klukkan 13:00 á sunnudaginn í Arena og hljóðar þátttökugjald upp á 1.900 krónur en ungmenni sem ekki hafa náð sextán ára aldri greiða aðeins 1.000 krónur.

„Byrjendur eða lengra komnir, allir eru hvattir til þess að mæta!“ segir á skráningarsíðu mótsins en reglur má nálgast með því að fylgja þessum hlekk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert