13 faldur Íslandsmeistari í keilu

Hafliði Örn „Flati“ Ólafsson, hefur skapað sér gott orð innan tölvuleikjasamfélagsins á Íslandi, en hann sér um Flatadeildina í Leage of Legends.

Deildin heitir eftir honum og á sér sögu: Þegar það vantaði styrktaraðila fyrir íslensku úrvaldsdeildina í leiknum tók hann sig til og styrkti hana úr eigin vasa. 

Glæstur fortíðarferill

Þú ert ekki bara góður í tölvuleikjum, þú ert líka góður í keilu?

Flati glottir en jánkar svo:

„Ég var það allavega.“

Flati á sér glæstan feril í keilu en vinnur nú …
Flati á sér glæstan feril í keilu en vinnur nú hjá bandarísku tæknifyrirtæki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flati keppti bæði hér heima og erlendis og vann til 13 Íslandsmeistaratitla á ferlinum. Hætti síðan vegna meiðsla.

Nú vinnur Flati hjá bandaríska tæknirisanum Netapp og stærir sig af tölvuleikjaaðstöðu sem marga dreymir um. Hann sýnir medalíurnar í stiklunni fyrir ofan.

Þáttinn í heild sinni má finna hér:

SETTÖPP er nýr þátt­ur rafíþrótta­vefs mbl.is þar sem hinir ýmsu tölvu­leikjaunn­end­ur fá heim­sókn og sýna tölvu­leikjaaðstöðuna – settöppið.

Flati með tölvuleikjaaðstöðunni sem fræg er orðin.
Flati með tölvuleikjaaðstöðunni sem fræg er orðin. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert