Rihanna eða Stitch væntanleg í Fortnite?

Fortnite.
Fortnite. Grafík/Epic Games

Ný könnun frá Fortnite skartar löngum lista af hugsanlegum samstarfsaðilum í sambandi við víxlverkefni. 

Listinn var mjög langur og fjölbreyttur. Þar var að finna tónlistarmenn, sjónvarpsþætti, frægar persónur, teiknimyndahetjur og vörumerki svo eitthvað sé nefnt.

Leikmenn gætu því átt von á búningum í Fortnite í sambandi við Flinstones, Pokémon, How I Met Your Mother, A$AP Rocky, Rihanna, Stitch og Mikka Mús til dæmis.

Gætu snúið aftur

Á listanum voru þó einnig nöfn yfir samstarfsaðila, eða víxlverkefni, sem hafa áður verið í Fortnite.

Til dæmis hefur teiknimyndaröðin Arcane áður komið við sögu Fortnite , en þá voru LoL-hetjurnar og systurnar Jinx og Vi aðgengilegar sem búningar. Eins hafa Star Wars og Marvel t.d. líka komið við sögu í Fortnite.

Heildarlistann má lesa hér að neðan í tísti frá Guille GAG sem greindi frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert