Endurskapar Stormwind í Minecraft

Stormwind er stórborg í World of Warcraft.
Stormwind er stórborg í World of Warcraft. Grafík/Activision Blizzard

Fjölmargir Minecraft-leikmenn hafa endurskapað heima eða borgir úr öðrum tölvuleikjum innan Minecraft. 

YouTube-stjarnan Yunatahel hefur nú vakið athygli Blizzards þar sem hann er að vinna í að endurskapa stórborgina Stormwind í Azeroth, World of Warcraft.

Yunatahel hleður reglulega upp World of Warcraft myndböndum og er þetta verkefni því ögn frábrugðið hans hefðbundnu myndböndum.

Blizzard tísti tilbaka

Verkefnið er enn í vinnslu og óvíst er hvenær borgin verði fullkláruð, en hægt að sjá það hér að neðan í myndbandi sem Yunatahel birti á Twitter.

Tístið vakti mikla athygli og svaraði Blizzard tístinu á frönsku.

„Get ekki beðið eftir að sjá lokaútkomuna,“ svaraði Blizzard á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert