Hópur Íslendinga keppir í Svíþjóð

Hópur Íslendinga er á leiðinni Svíþjóðar í september til þess að taka þátt í rafíþróttamótinu Midgard.

Mótið fer fram í Helsingborg frá 16. september til 18. september og verður keppt í bardagaleiknum Super Smash Bros Ultimate og Super Smash Bros Melee. Þá mætast öflugustu Smash Bros-leikmennirnir frá Norðurlöndunum og keppast um titilinn „Konungur Norðursins“.

„Það er loksins komið að því að komast að því hver er sá besti, og Konungur Norðursins!“ segir um mótið á skráningarsíðunni.

Íslenskir leikmenn sækja fram

Á Íslandi er öflug og virk sena í Smash Bros þar sem keppt er mánaðarlega í mótaröðinni Zoner's Paradise.

Nú þegar eru þrettán íslenskir leikmenn skráðir á Midgard en alls eru 113 leikmenn skráðir núna. Skráningin er enn opin en takmarkast við 256 leikmenn í heildina, þá komast 128 leikmenn að í ultimate-keppninni og 128 að í melee-keppninni.

Skráðir leikmenn frá Íslandi eru eftirfarandi:

AirLi - Erlingur Atli Pálmarsson

Solar - Bergsteinn Ásgeirsson

Mapelgold - Hlynur Eysteinsson

mR noMad - Skúli Bárðarsson

Seether - Frosti Hlifar Ragnarsson

Brake - Breki Örn Sigurðarson

thebigdog - Rögnvaldur Líndal Magnússon

Eggy - Eggert Örn Sigurðsson

Jon Sama - Jón Arnar Sighvatsson

Hilmir - Hilmir Örn Smárason Frodell

Purplefire8 - Tómas Sindri Leósson

thorri27 - Þórhallur Eyvindarson

Pheonixx507 - Eric Julian Dieme

Taka einn leik í einu

Erlingur Atli „AirLi“ Pálmarsson, mótastjóri Zoner's Paradise, segir í samtali við mbl.is að þeir séu alltaf að spila saman og byrjaðir að æfa sig fyrir mótið, en að þetta verði samt hörð barátta.

„Ég er ekki að pæla í hversu langt við komumst endilega, við tökum bara einn leik í einu en ég held samt að við séum nokkuð góðir!“ segir Erlingur.

„Ég held samt að markmiðið sé að sýna heiminum hvað Ísland geti gert!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert