BEINT: Masters Copenhagen í Valorant

Síðasta meistaramótið fyrir heimsmeistaramótið í Valorant fer fram í Kaupmannahöfn. …
Síðasta meistaramótið fyrir heimsmeistaramótið í Valorant fer fram í Kaupmannahöfn. VCT Masters Copenhagen. Grafík/Riot Games

Það er nóg um að vera í Kaupmannahöfn þar sem undanúrslitin í Masters Copenhagen í leiknum Valorant eru í fullu fjöri.

FunPlus Pheonix og OpTic Gaming hamast nú á lyklaborðinu og keppast um að komast áfram í úrslitaleikinn gegn Paper Rex á morgun.

Hér að neðan má horfa á undanúrslit Masters Copenhagen í beinni útsendingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert