Breytt útgáfa Simpsons: Hit & Run vekur athygli

Skjáskot úr spilun leiksins.
Skjáskot úr spilun leiksins.

Aðdáendur tölvuleiksins The Simpsons: Hit & Run hafa beðið óþreyjufullir eftir endurgerð leiksins til fjölda ára. Einn aðdáandi tók það á sig að endurgera leikinn í heild sinni, með uppfærðri grafík, og birtir hann reglulega myndskeið af árangrinum á YouTube-síðu sinni.

Óhætt er að segja að verkefni El Gato Del Tejado, listamannsins sem vinnur að endurgerð leiksins, hafi heppnast með ágætum en leikurinn líkist nú teiknimyndaþáttunum sem aldrei fyrr.

Engar upplýsingar liggja fyrir um hvenær endurgerð Del Tejado verður gefin út en aðdáendur leiksins geta þó svalað þorstanum með því að horfa á myndskeiðið hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert