GameTíví gefur PlayStation 5

GameTíví gefur sigurvegara fantasíu-fótboltadeildarinnar sinnar PlayStation 5.
GameTíví gefur sigurvegara fantasíu-fótboltadeildarinnar sinnar PlayStation 5. Ljósmynd/Unsplash/Nikita Kachanovsky

Íslenskir tölvuleikjaspilarar geta nú sameinast og unnið sér inn fjölda verðlauna í nýrri íslenskri fantasíu-fótboltadeild frá GameTíví.

GameTíví stofnaði fantasíu-fótboltadeild fyrir tölvuleikjaspilara á Íslandi og bindur vonir við að þeir geti sameinast þar og haft gaman af.

Óhætt er að segja að verðlaunin séu vegleg en GameTíví mun gefa sigurvegara deildarinnar PlayStation 5, sem hefur verið erfitt að verða sér úti um víðsvegar um heiminn.

Fyrir utan stóra vinninginn geta leikmenn einnig unnið til fjölda verðlauna á tímabilinu þar sem GameTíví mun gefa fjöldan allan af aukavinningum í gegnum allt tímabilið.

Þeir sem hafa hug á að taka þátt í deildinni geta skráð sig og liðið sitt HÉR og fundið hana með kóðanum 8iygv.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert