Íslandsmeistari fær Nintendo Switch

Fyrsti Íslandsmeistarinn í Mario Kart fær Nintendo Switch Oledo í …
Fyrsti Íslandsmeistarinn í Mario Kart fær Nintendo Switch Oledo í verðlaun. Ljósmynd/Adam Leslie Scanlon

Íslandsmeistaramótið í Mario Kart hefst klukkan 17:00 í dag og fær sigurvegarinn tölvu í verðlaun.

Adam Leslie Scanlon heldur mótið í rafíþróttahöllinni Arena í samstarfi við Ormsson og er það til styrktar velferðarsjóðsins Vinátta í verki.

Nóg um að vera

Sigurvegari mótsins, allra fyrsti Íslandsmeistarinn í Mario Kart, mun hljóta Nintendo Switch Oled í verðlaun. Þá getur Íslandsmeistarinn notað þá tölvu til þess að „æfa sig enn meira fyrir mótið á næsta ári“.

Hægt er að vinna sér inn fleiri verðlaun á eftir þar sem fleiri keppnir fara einnig fram, svo sem búningakeppni og bingó. 

Miðar fást á Tix.is bæði fyrir keppendur og áhorfendur, en hverjum miða fylgir armband, pítsuhlaðborð, drykkur og gleðistundar-verð á drykkjum á barnum á meðan viðburðinum stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert