Nýr formaður tekur við RÍSÍ í fyrsta skiptið

Eva Margrét Guðnadóttir, fomaður Rafíþróttasamtaka Íslands.
Eva Margrét Guðnadóttir, fomaður Rafíþróttasamtaka Íslands. Ljósmynd/Rafíþróttasamtök Íslands

Á aðalfundi Rafíþróttasambands Íslands var Eva Margrét Guðnadóttir kjörin formaður sambandsins.

Þetta er í fyrsta skipti sem það verða formannsskipti frá stofnun sambandsins en tekur hún við af Ólafi Hrafni Steinarssyni.

Mikill heiður að taka við stöðunni

Eva Margrét er 27 ára og hefur starfað hjá RÍSÍ frá því snemma á þessu ári við framleiðslu á íslensku afþreyingarefni og tekið ófá viðtöl við íslenskt rafíþróttafólk. 

Hún hefur einnig verið á skjám landsmanna í Framhaldsskólaleikunum og með streymishópnum Babe Patrol, ásamt því að standa fyrir sérstöku kvöldi fyrir stelpur í tölvuleikjum í Arena Gaming. Samhliða því er Eva Margrét meistaranemi í Mannauðsstjórnun og vinnusálfræði.

„Það er mikill heiður að taka við þessari stöðu og fá að leiða starfið næstu tvö árin. Samtökin hafa verið að eflast mikið með hverju árinu og sérstaklega hefur verið ánægjulegt að sjá aukna þátttöku alls fólks í rafíþróttum en mínar áherslur sem formaður verða meðal annars að auka hlut kvenna og jaðarhópa í rafíþróttum ásamt því að tryggja gæði á skipulögðu starfi ungmenna í rafíþróttum en nú þegar eru aðstæður fyrir iðkendur víða um land og mikilvægt fyrir sambandið að veita öllum aðildarfélögum góðan stuðning.

Margar íþróttarhreyfingar hafa þurft að bíða í fleiri áratugi eftir því að konu verði treyst til að leiða starfið. Kjör mitt segir margt um hversu framalega við stöndum en aðeins eru fjögur ár síðan sambandið var stofnað,“ segir Eva Margrét.

Einnig voru kjörin í stjórn:

Þengill Björnsson

Kári Björnsson

Benjamín Björn Hinriksson

Ásdís Erla Jóhannsdóttir

Davíð Jóhannsson

Þórir Viðarsson

Varamenn eru eftirfarandi:

Bjarni Sigurðsson

Axel Gíslason

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) eru samtök stofnuð til þess að vekja athygli á og styðja þróun rafíþrótta (e. esports) á Íslandi.

Markmið samtakanna er að kynna rafíþróttir sem gilt áhugamál sem elur með sér jákvæða ávinninga fyrir iðkendur svo sem samvinnu, samskiptahæfni, viðbragðsflýti, vandamálalausn og hvers konar líkamlega þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti ásamt fleiri ávinningum þegar þær eru stundaðar markvisst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert