Ljósleiðaradeildin er í fullum gangi og gífurleg spenna var fyrir sjöttu umferð sem fór fram síðasta laugardag þegar svokallaður „Ofur laugardagur” fór fram í fyrsta sinn í sögu Ljósleiðaradeildarinnar.
Spennan magnast
Fimm leikir fóru fram á laugardaginn og reyndu Dusty að halda sigurhrinu sinni gangandi en til þess þurftu þeir að vinna LAVA. Það tókst þó ekki betur en að LAVA menn komu til baka úr óvinnandi stöðu fyrir marga og unnu leikinn 16-12 eftir að hafa verið undir í hálfleik.
Dusty menn standa þó ennþá efstir í stigatöflunni en núna jafnir Þórsurum með 10 stig.
Baráttan um efstu sætin
Þór tók á móti Ármanni á einu mest spilaða korti CS:GO, „Dust 2”, leikmaður Þórs J0n spilaði vel í leiknum og hjálpaði Þór að vinna fyrstu lotuna sem setti þá vel upp fyrir næstu lotur sem þeir unnu örugglega.
Í hálfleik voru Þórsarar einungis búnir að tapa tveimur lotum og stefndu á að sigla þessu örugglega í höfn en leikmenn Ármanns börðust vel til enda, sem dugði þó ekki til og endaði leikurinn 16-12 fyrir Þór sem tylltu sér upp við hlið Dusty í fyrsta sæti deildarinnar
Hér má sjá allar niðurstöður helgarinnar og nú tekur við frívika í Ljósleiðaradeildinni.