Ungmenni á aldrinum 13 til 25 ára geta skráð sig til leiks í rafíþróttamót Samfés og Elko og unnið til verðlauna, en mótið fer fram næstu helgi.
Keppt verður í hinum ýmsu leikjum alla næstu helgi, frá 11. til 13. nóvember, í íþróttahúsinu Digranesi. Mótið er opið öllum ungmennum frá 13 ára aldri upp að 25 ára og fer skráning fram í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum um allt land.
Er þetta kjörið tækifæri til þess að spreyta sig í tölvuleikjum og keppa, spila eða bara til þess eins að sýna sig og sjá aðra.
Þátttakendur á aldrinum þrettán til sextán skrá sig til leiks í félagsmiðstöðinni sinni meðan eldri þátttakendur senda tölvupóst á netfangið samfes@samfes.is, og fá um leið nánari upplýsingar.
Hér að neðan má sjá myndband frá síðasta rafíþróttamóti Samfés og Elko sem fór fram í vor.