Hvaða lið munu eigast við í úrslitum?

Saga hefur verið á flugi í umspilinu.
Saga hefur verið á flugi í umspilinu. Skjáskot/Twitch

Íslenska Blast umspilið er búið að bjóða upp á Counter-Strike veislu síðustu daga og mun brátt koma í ljós hvaða lið sigrar umspilið og heldur áfram á næsta stig.

Í kvöld munu eigast við liðin Ármann og Dusty. Dusty hefur náð góðum úrslitum í neðra leikjatré umspilsins eftir að hafa tapað 2-0 gegn Saga Esports.

Lið Ármanns datt úr efra leikjatrénu á sama hátt og Dusty, með 2-0-tapi gegn Saga Esports.

Sigurlið kvöldsins spilar gegn Saga Esports í úrslitum og geta þá bæði lið reynt að ná fram hefndum.

Dagskrá umspilsins og viðureignir.
Dagskrá umspilsins og viðureignir. Grafík/RÍSÍ

Hægt er að fylgjast með þessum æsispennandi leik Ármanns gegn Dusty í kvöld á Stöð 2 Esport og Twitch. Útsending hefst klukkan 19.45

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert