Bardaginn beint af augum

Michael B. Jordan fer með aðalhlutverk í myndunum Creed.
Michael B. Jordan fer með aðalhlutverk í myndunum Creed. Mynd/Playstation

Bardagamyndin Creed 3 kemur út í næsta mánuði og mun leikarinn Michael B. Jordan fara með aðalhlutverk í henni eins og í fyrri myndum.

Creed kvikmyndirnar eru sköpunarverk leikarans Sylvester Stallone sem lék aðalhlutverk í kvikmyndunum um Rocky Balboa frá árinu 1976. 

Mættur í hringinn

Í apríl kemur út ný útgáfa leiksins Creed: Rise to Glory og er hann byggður á kvikmyndinni Creed. Leikurinn mun koma út á Playstation og verður hægt að spila hann með nýjum sýndarveruleikagleraugum PS VR2.

Miklum tíma hefur verið varið í hönnun á hljóði og myndgæðum og mun spilaranum líða eins og Rocky Balboa sjálfur sé að hvetja hann áfram.

Spilarinn getur þó barist og ekki þurft að hafa áhyggjur af því að fá rothögg enda er þetta einungis sýndarveruleiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert